Litlir sopar, eitt þrep í einu.

Ermi heldur utan um vökva, máltíðir og prótein eftir magaermi eða magahjáveitu, veit á hvaða þrepi þú ert og minnir þig á það sem er eftir af deginum.

Vökvinn á einum smelli

+100, +200 eða +250 ml. Þú sérð strax hvort þú náir 1,5 lítrum í dag — líka dagana eftir aðgerð, þegar það skiptir mestu.

Veit á hvaða þrepi þú ert

Fljótandi, mjúkt eða hefðbundið fæði. Ermi reiknar daginn frá aðgerð og sýnir hvað er leyfilegt og hvað á að forðast.

Máltíðir og prótein

Hleðsla, AB-mjólk, skyr og fleira sem flýtival. Prótein í hverri máltíð, og áminning um að drekka ekki strax á eftir mat.

Áminningar sem vita hvað vantar

Ekki vekjaraklukka, heldur „þú átt eftir 600 ml og 2 máltíðir í dag“. Þegir þegar markmiðum er náð.

Settu Ermi í símann

Þá opnast það eins og hvert annað app — og áminningarnar virka.

Android

Einn smellur, síminn sér um restina.

Í Chrome: ýttu á ⋮ efst til hægri og veldu Setja upp app (eða „Bæta á heimaskjá“).

iPhone

Þetta verður að gera í Safari — í Chrome er valkosturinn ekki til.

  1. Ýttu á Deila neðst á skjánum.
  2. Skrunaðu niður og veldu Bæta á heimaskjá .
  3. Ýttu á Bæta við. Ermi birtist á heimaskjánum.

Svo: kveiktu á áminningum

Fimm skref. Þetta þarf bara að gera einu sinni.

1. Opnaðu Ermi af heimaskjánum — ekki í vafra.
2. Ýttu á Stillingar neðst til hægri.
3. Undir Almennt: ýttu á Kveikja á tilkynningum.
4. Síminn spyr hvort megi senda þér tilkynningar. Veldu Leyfa.
5. Þá lætur Ermi vita þegar langt líður á milli — og þegir annars.

Á iPhone virka áminningar aðeins ef appið er á heimaskjánum. Í venjulegum vafraglugga koma engar tilkynningar.

Á Samsung þarf líka að fara í Stillingar → Rafhlaða → Takmörk á bakgrunnsnotkun og slökkva á „Setja ónotuð forrit í svefn“ — annars bíða tilkynningarnar þar til appið er opnað.

Ermi fyrir magaermi og magahjáveitu. Appið heldur utan um skráningu og minnir á, en kemur ekki í stað ráðlegginga frá þínu heilbrigðisteymi. Gögnin eru geymd innan EES, engar auglýsingar eða rakningar, og þú getur eytt aðganginum og öllum gögnum hvenær sem er. Skilmálar og persónuvernd