← Ermi

Skilmálar og persónuverndarstefna

Síðast uppfært 17. september 2026

Hér er sagt á einföldu máli hvað Ermi gerir, hvaða upplýsingar eru geymdar, hvers vegna, hversu lengi og hvaða rétt þú hefur.

1. Hvað Ermi er — og er ekki

Ermi hjálpar fólki fyrir og eftir efnaskiptaaðgerð (magaermi eða magahjáveitu) að halda utan um vökva, máltíðir og prótein, fylgjast með þrepum í mataræði og fá áminningar.

Ermi kemur ekki í stað ráðlegginga frá heilbrigðisstarfsfólki. Upplýsingar um þrep og mataræði eru teknar saman úr fræðsluefni (t.d. frá GB Obesitas og Landspítala) og geta verið aðrar en þínar leiðbeiningar. Fylgdu alltaf ráðum þíns teymis. Ef þú veikist eða ert í vafa skaltu hafa samband við teymið þitt eða hringja í 112 í neyðartilvikum.

2. Þín ábyrgð og okkar

Þú notar Ermi á eigin ábyrgð. Appið heldur utan um það sem þú skráir og minnir þig á, en allar ákvarðanir um mataræði, vökva og heilsu tekur þú sjálf/ur í samráði við þitt heilbrigðisteymi.

Ermi geymir gögnin þín, fer með þau eins og lýst er hér og eyðir þeim þegar þú vilt. Hafðu samband á info@ermi.tech með allar spurningar um gögnin þín.

3. Hvaða upplýsingar eru geymdar

Við biðjum ekki um fullt nafn, kennitölu, símanúmer eða heimilisfang.

4. Til hvers

Eingöngu til að appið virki fyrir þig: sýna stöðu dagsins, dagbókina og þrepin, og senda þér áminningar. Gögnin eru ekki seld, ekki notuð í auglýsingar og ekki afhent öðrum. Engar auglýsinga- eða greiningarkökur eru notaðar; eina kakan heldur þér innskráðum.

Heilsufarsupplýsingar eru viðkvæmar persónuupplýsingar. Þær eru unnar á grundvelli afdráttarlauss samþykkis sem þú gefur við nýskráningu. Þú getur afturkallað það hvenær sem er með því að eyða aðganginum.

5. Hvar gögnin eru geymd og hver kemur að þeim

Öll samskipti við Ermi eru dulkóðuð (HTTPS).

6. Hversu lengi

7. Réttindi þín

8. Notkunarskilmálar

9. Breytingar

Ef við breytum þessum skilmálum á þann hátt sem skiptir máli fyrir gögnin þín látum við vita í appinu áður en breytingin tekur gildi.